Fundargerð 38. fundar Loftslagsráðs

19. maí 2021

Mætt: Halldór Þorgeirsson, Brynhildur Davíðsdóttir, Ragnhildur Freysteinsdóttir, Auður Alfa Ólafsdóttir, Sigurður Loftur Thorlacius, Hildur Hauksdóttir, Jóhanna Harpa Árnadóttir, Árni Finnsson, Sveinn Margeirsson, Steingrímur Jónsson, Guðmundur Þorbjörnsson, Hrönn Hrafnsdóttir, Guðfinna Th. Aðalgeirsdóttir og Unnsteinn Snorri Snorrason. 

Varafulltrúi sem sat fundinn: Hafdís Hanna Ægisdóttir. 

Gestir fundarins voru: undir lið 2 Björn Bjarnason og undir lið 4 Hafdís Hanna Ægisdóttir forstöðumaður Stofnunar Sæmundar fróða og Sóllilja Bjarnadóttir doktorsnemi.

Fundurinn var haldinn í Háhyrnu, Skuggasundi 3 kl. 13-15. Guðný Káradóttir verkefnisstjóri skráði fundargerð.

Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð síðasta fundar var samþykkt.

Ræktum Ísland! 

Björn Bjarnason sem er annar þeirra sem leiddi vinnu við umræðuskjal um mótun landbúnaðarstefnu, var gestur fundarins. Hann kynnti nýútkomið umræðuskjal verkefnastjórnar um landbúnaðarstefnu og lagði sérstaka áherslu á að kynna loftslagsvíddina. Í skjalinu er 19 áherslupunktar og sagði hann áherslu á loftslagsmálin mikla; tillaga 8 fjallar m.a. um kolefnisjöfnun landbúnaðar.  Umræðuskjalið er að finna í Samráðsgátt stjórnvalda og er hægt að veita umsögn til 26. maí. 

Fyrirspurnir og umræður að lokinni kynningu Björns. 

Samtal og sókn 

Rætt verður um reynslu og lærdóm af fundi um ferðaþjónustuna sem haldinn var 5. maí sl. sem haldinn var undir merkjum Samtals og sóknar í loftslagsmálum. Viðburðurinn þótti takast vel og þakkaði formaður verkefnisstjóra fyrir undirbúning og þeim sem þátt tóku. 

Í kjölfarið var rætt um sambærilegt samtal við sjávarútveginn sem verður streymt frá 2. júní nk. Fyrir fundinum lá samantekt um sjávarútveg frá febrúar sl. en einnig kynnti verkefnisstjóri upplýsingar um losun gróðurhúsalofttegunda, m.a. úr samantekt Eflu sem unnin var fyrir Loftslagsráð. Rætt var um sýn fulltrúa í ráðinu á nálgun og spurningar sem lagt verður upp með á fundinum 2. júní. Tveir fulltrúar Loftslagsráðs þau Hrönn Hrafnsdóttir og Halldór Þorgeirsson verða spyrlar og fjórir aðilar í sjávarútvegi og sérfræðingar í málefnum greinarinnar taka þátt í þessu samtali. Samþykkt var að undanskilja losun frá flugi og skipaflutningum milli landa (útflutningi afurða) úr umræðunni á fundinum þar sem til stendur að beina sjónum að milliríkja samgöngum á öðrum viðburði í viðburðaröðinni Samtal og sókn. 

Vísindaráðgjöf 

Gestir fundarins þær Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Stofnunar Sæmundar fróða og Sóllilja Bjarnadóttir doktorsnemi sögðu frá framgangi vinnu við kortlagningu á vísindaráðgjöf sem þær vinna að í samvinnu við Loftslagsráð. Markmiðið er að gefa yfirsýn og leggja grunn að umræðu um þverfræðilega og öfluga vísindaráðgjöf um loftslagsmál á Íslandi sem skili auknum gæðum í stefnumörkun og ákvarðanatöku.  Tekin hafa verið viðtöl við 10 sérfróða aðila, yfirmenn rannsóknastofnana, háskólarektora, fulltrúa fyrirtækja og stofnana. Í umræðum komu fram spurningar og ábendingar varðandi kortlagninguna. 

Ráðherrafundur Norðurskautsráðsins 

Vakin var athygli á ráðherrafundi Norðurskautráðsins sem haldinn verður í Hörpu 20. maí. Loftslagsmálin verða á dagskrá og fundurinn talinn mikilvægur. 

Önnur mál

Engin önnur mál voru á dagskrá fundarins. 

Fréttir

Málþing um stjórnun loftslagsmála og hlutverk loftslagsráða

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Loftslagsráð boða til málþings um stjórnun loftslagsmála og hlutverk loftslagsráða. Á málþinginu verður fjallað á fræðilegan hátt um stjórnun loftslagsmála (e. climate governance) og hlutverk...

Breytingar á Loftslagsráði í undirbúningi hjá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu

Í minnisblaði sem Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra kynnti á dögunum fyrir ríkisstjórninni kemur fram að hann hyggst þróa og efla Loftslagsráð svo það geti sinnt lögbundnu...

Uppgjör Loftslagsráðs

Loftslagsráð lýkur senn fjögurra ára skipunartíma sínum. Af því tilefni lagði ráðið mat á þann árangur sem náðst hefur, eða ekki náðst, síðustu fjögur árin í viðureigninni við loftslagsvá hérlendis og gaf út í skjali er nefnist: Uppgjör...

Tölum skýrt og verum hreinskilin til að vita hvar við stöndum

Á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP28, í lok þessa árs verður í fyrsta skipti kynnt svokallað stöðumat heimsins, eða global stock take. Stöðumatinu er ætlað að gefa nákvæma mynd af því hvar þjóðir veraldar eru staddar þegar kemur að...

Bráðnun jökla að aukast

Samkvæmt niðurstöðum nýrrar alþjóðlegrar rannsóknar hafa jöklar á Suðurskautslandinu og á Grænlandi bráðnað mun hraðar á undanförnum áratugum en áður var talið. Árleg bráðnun jöklanna hefur sexfaldast frá 1992 og sjö verstu árin hvað varðar...

Hlýnun stefnir yfir 1,5 gráðu mörkin á næstu árum

Fjármálaáætlun fyrir árin 2024-2028 hefur nú verið kynnt. Hún hefur að geyma áætlun um þróun ríkisútgjalda og tekna, og þar eru lagðar á borðið þær áherslur sem einkenna skulu umsvif hin opinbera á komandi árum. Áætlunin er byggð á spálíkönum sem...

Áform um alþjóðlegt vöktunarnet á losun og bindingu GHL

Nýjasta talan yfir magn koltvísýrings í andrúmsloftinu, þegar þetta er skrifað, er 424,32 ppm. Sú tala þýðir að af hverjum milljónum einingum í andrúmsloftinu eru 424,32 koltvísýringur. Talan er fengin frá rannsóknarstöðinni í Mauna Loa í Hawaii,...

Góð dæmi um réttlát umskipti – Ný skýrsla

Með því að gera ráð fyrir þjálfun starfsfólks og að því sé gert kleift að beita nýrri tækni og höndla nýjar áskoranir er hægt að auka líkurnar á því að loftslagsaðgerðir skili árangri til langs tíma. Þessa ályktun má draga af nýrri skýrslu UN...

Binda einhver ríki meira kolefni en þau losa?

Alls hafa 93 lönd í heiminum, samkvæmt Climatewatch, lýst því yfir formlega að þau stefni að kolefnishlutleysi. Ísland er á meðal þeirra tuttugu landa sem hafa bundið slíkt markmið í lög, en Ísland skal verða orðið kolefnishlutlaust samkvæmt lögum...

Hitastig sjávar og loftslagsbreytingar

Meðalyfirborðshiti sjávar á jörðinni hefur aldrei mælst jafnhár og nú í apríl, eða 21,1 gráða. Þar með hefur metið verið slegið frá því í mars 2016, en þá mældist hitinn 21 gráða. Mælingar undanfarinna áratuga hafa leitt í ljós að hitastig sjávar...