Fundargerð 35. fundar Loftslagsráðs

17. mars 2021

Mætt: Halldór Þorgeirsson, Brynhildur Davíðsdóttir, Ragnhildur Freysteinsdóttir, Auður Alfa Ólafsdóttir, Sigurður Loftur Thorlacius, Hildur Hauksdóttir, Jóhanna Harpa Árnadóttir, Árni Finnsson, Steingrímur Jónsson, Sveinn Margeirsson, Guðfinna Th. Aðalgeirsdóttir, Unnsteinn Snorri Snorrason, Sævar Helgi Bragason og varafulltrúinn Páll Björgvin Guðmundsson fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga. 

Gestir ráðsins: Umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, Hugi Ólafsson skrifstofustjóri og Sigríður Halldórsdóttir aðstoðamaður ráðherra (liður 2). 

Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð síðasta fundar var samþykkt.

Landsframlag Íslands (NDC) 

Umhverfis- og auðlindaráðherra var boðið á fundinn til þess að gera grein fyrir landsframlagi sem sent var skrifstofu Parísarsamningsins 18. febrúar 2021. Jafnframt lágu fyrir fundinum tvö skjöl, landsframlag Íslands eins og það var sent inn og greining skrifstofu samningsins á samanlögðum áhrifum þeirra landsframlaga sem borist höfðu innan tímamarka við lok árs 2020.

Eftir kynningu ráðherra voru fyrirspurnir til ráðherra og umræður. Fram kom m.a. að ekki liggur fyrir hvernig framlag Íslands í samfloti með Noregi og Evrópusambandinu um 55% samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda verður reiknað. 

Landsframlagið verður sett aftur á dagskrá ráðsins í apríl og rætt um frekari viðbrögð.

Ábyrg kolefnisjöfnun 

Sagt var frá vinnustofu Staðlaráðs og Loftslagsráðs um ábyrga kolefnisjöfnun, því sem fram fór á fyrstu tveimur fundunum sem haldnir voru 25. febrúar og 4. mars, sem og undirbúningi síðasta fundar vinnustofunnar sem verður haldinn 18. mars. Fyrir fundinum lágu samantektir af fyrri fundum og frásögn af verkefninu á vef Loftslagsráðs. Þeir meðlimir í ráðinu sem taka þátt í vinnustofunni sögðu frá sinni reynslu. Umræður, m.a. um mikilvægi þess að hugtök séu skýr. Hugmynd kom fram um að Loftslagsráð beiti sér fyrir fræðslu um ábyrga kolefnisjöfnun og samþykkt að fela verkefnisstjóra að skoða hugsanlega útfærslu þeirrar hugmyndar. 

Málið verður sett aftur á dagskrá ráðsins þegar vinnustofusamþykkt liggur fyrir. 

Önnur mál

 Sagt var frá undirbúningi viðburðar um ferðaþjónustu undir merkjum Samtals og sóknar í loftslagsmálum sem er áætlaður 13. apríl nk. Einnig sagt stuttlega frá viðburði um sjávarútveg sem áætlað er að halda í byrjun júní. 

Þá var sagt frá fyrirkomulagi við opinn fund Loftslagsráðs sem haldinn verður 24.mars kl. 15 þar sem fulltrúi danska loftslagsráðsins segir frá starfi ráðsins og samspili við ferlið í ákvarðanatöku og stefnumörkun í loftslagsmálum þar í landi. Einnig var sagt frá fyrirhuguðum fundi formanns og varaformanns ráðsins með kollegum sínum hjá danska ráðinu 7. apríl nk.

Formaður greindi frá erindi sem hann hélt á samráðsfundi 25. febrúar um tillögu Evrópuþingsins um stofnun evrópsks loftslagsráðs (European Climate Change Council).

Auður Alfa Ólafsdóttir greindi frá opnum veffundi sem ASÍ, BHM og BSRB halda um réttlát umskipti í umhverfismálum 18. mars. 

Fréttir

Málþing um stjórnun loftslagsmála og hlutverk loftslagsráða

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Loftslagsráð boða til málþings um stjórnun loftslagsmála og hlutverk loftslagsráða. Á málþinginu verður fjallað á fræðilegan hátt um stjórnun loftslagsmála (e. climate governance) og hlutverk...

Breytingar á Loftslagsráði í undirbúningi hjá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu

Í minnisblaði sem Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra kynnti á dögunum fyrir ríkisstjórninni kemur fram að hann hyggst þróa og efla Loftslagsráð svo það geti sinnt lögbundnu...

Uppgjör Loftslagsráðs

Loftslagsráð lýkur senn fjögurra ára skipunartíma sínum. Af því tilefni lagði ráðið mat á þann árangur sem náðst hefur, eða ekki náðst, síðustu fjögur árin í viðureigninni við loftslagsvá hérlendis og gaf út í skjali er nefnist: Uppgjör...

Tölum skýrt og verum hreinskilin til að vita hvar við stöndum

Á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP28, í lok þessa árs verður í fyrsta skipti kynnt svokallað stöðumat heimsins, eða global stock take. Stöðumatinu er ætlað að gefa nákvæma mynd af því hvar þjóðir veraldar eru staddar þegar kemur að...

Bráðnun jökla að aukast

Samkvæmt niðurstöðum nýrrar alþjóðlegrar rannsóknar hafa jöklar á Suðurskautslandinu og á Grænlandi bráðnað mun hraðar á undanförnum áratugum en áður var talið. Árleg bráðnun jöklanna hefur sexfaldast frá 1992 og sjö verstu árin hvað varðar...

Hlýnun stefnir yfir 1,5 gráðu mörkin á næstu árum

Fjármálaáætlun fyrir árin 2024-2028 hefur nú verið kynnt. Hún hefur að geyma áætlun um þróun ríkisútgjalda og tekna, og þar eru lagðar á borðið þær áherslur sem einkenna skulu umsvif hin opinbera á komandi árum. Áætlunin er byggð á spálíkönum sem...

Áform um alþjóðlegt vöktunarnet á losun og bindingu GHL

Nýjasta talan yfir magn koltvísýrings í andrúmsloftinu, þegar þetta er skrifað, er 424,32 ppm. Sú tala þýðir að af hverjum milljónum einingum í andrúmsloftinu eru 424,32 koltvísýringur. Talan er fengin frá rannsóknarstöðinni í Mauna Loa í Hawaii,...

Góð dæmi um réttlát umskipti – Ný skýrsla

Með því að gera ráð fyrir þjálfun starfsfólks og að því sé gert kleift að beita nýrri tækni og höndla nýjar áskoranir er hægt að auka líkurnar á því að loftslagsaðgerðir skili árangri til langs tíma. Þessa ályktun má draga af nýrri skýrslu UN...

Binda einhver ríki meira kolefni en þau losa?

Alls hafa 93 lönd í heiminum, samkvæmt Climatewatch, lýst því yfir formlega að þau stefni að kolefnishlutleysi. Ísland er á meðal þeirra tuttugu landa sem hafa bundið slíkt markmið í lög, en Ísland skal verða orðið kolefnishlutlaust samkvæmt lögum...

Hitastig sjávar og loftslagsbreytingar

Meðalyfirborðshiti sjávar á jörðinni hefur aldrei mælst jafnhár og nú í apríl, eða 21,1 gráða. Þar með hefur metið verið slegið frá því í mars 2016, en þá mældist hitinn 21 gráða. Mælingar undanfarinna áratuga hafa leitt í ljós að hitastig sjávar...