Fundargerð 37. fundar Loftslagsráðs

28. apríl 2021

Mætt: Halldór Þorgeirsson, Brynhildur Davíðsdóttir, Ragnhildur Freysteinsdóttir, Auður Alfa Ólafsdóttir, Sigurður Loftur Thorlacius, Hildur Hauksdóttir, Jóhanna Harpa Árnadóttir, Árni Finnsson, Sveinn Margeirsson, Guðfinna Th. Aðalgeirsdóttir og Unnsteinn Snorri Snorrason. 

Varafulltrúar sem sátu fundinn: Agla Eir Vilhjálmsdóttir Páll Björgvin Guðmundsson og Eygerður Margrétardóttir. 

Gestir fundarins undir lið 3 voru: Bryndís Skúladóttir VSÓ og Hlynur Óskarsson LBHÍ (sem einnig sat fundinn sem varafulltrúi).Fundurinn var haldinn á Teams kl. 10-12. Guðný Káradóttir verkefnisstjóri skráði fundargerð.

Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð síðasta fundar var samþykkt með einni breytingu.  

Binding koldíoxíðs í berg

Edda Sif Aradóttir framkvæmdastýra Carbfix og Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir jarðfræðingur sem er yfir C02 förgun hjá Carbfix voru gestir fundarins. Þær kynntu fyrirtækið, tæknina og nýsköpunarverkefni þess. Þær sögðu m.a. frá nýju verkefni, Coda Terminal, sem er móttöku- og förgunarmiðstöð fyrir CO2 sem staðsett verður í Straumsvík. Fyrirspurnir og umræður m.a. um hversu mikið Carbfix tæknin getur minnkað innlenda losun. Þær greindu frá því helsta sem er framundan, og hvað þurfi að skýra, varðandi hvernig það  koldíoxíð sem flutt er til landsins og fargað hér á landi komi inn í loftslagsbókhald Íslands og hvernig ákvæði í reglugerðum Evrópusambandsins verði innleidd í regluverk hér á landi varðandi bindingu í bergi. Fram kom í máli Eddu og Söndru að það vantar betri sýn á uppsprettur frá smærri iðnað, staðsetningu og hver losun hans er, svo fyrirtækið geti þjónað þeim í framtíðinni með tæknilausnum sínum. 

Nettó losun frá landi 

Gestur fundarins var Bryndís Skúladóttir hjá VSÓ sem vinnur með Loftslagsráði að greiningarverkefni á nettó losun frá landi.  Ráðið var upplýst um stöðu verkefnis sem unnið er í samstarfi við VSÓ ráðgjöf og með aðkomu Hlyns Óskarssonar frá LBHÍ. Tilgangur þess er að varpa ljósi á hvernig rannsóknir og vöktun á losun frá landi hérlendis mæta kröfum í uppgjörsreglum um loftslagsbókhald. Sagt var frá framgangi greiningarvinnunnar; samantekt á rannsóknum, vöktun og kortlagningu á nettó losun frá landi. Fulltrúar í ráðinu spurðu og veittu leiðsögn. 

Niðurstaðan úr vinnunni mun liggja fyrir í júní og þá mun ráðið taka afstöðu til niðurstöðunnar og álykta um málið. 

Samtal og sókn, ferðaþjónusta 

Fyrir fundinum lá samantekt um ferðaþjónustuna og lýsing á viðburðinum sem haldinn verður 5. maí kl. 13 undir merkjum Samtals og sóknar í loftslagsmálum ferðaþjónustunnar. Verkefnisstjóri kynnti einnig tölfræði um losun gróðurhúsalofttegunda í ferðaþjónustu sem Efla hafði tekið saman. Umræður um áherslur í samtalinu. Tveir fulltrúar Loftslagsráðs þau Sveinn Margeirsson og Guðfinna Th. Aðalgeirsdóttir verða spyrlar og fjórir aðilar í ferðaþjónustu verða í pallborði.

Samþykkt var að undanskilja losun frá milliríkjaflugi og skemmtiferðaskipum úr umræðunni á fundinum og beina sjónum að milliríkja samgöngum bæði flugi og siglingum á öðrum viðburði í viðburðaröðinni Samtal og sókn.

Landsframlag 

Á síðasta fundi var ákveðið að setja hugsanleg viðbrögð við landsframlagi Íslands á dagskrá þessa fundar. Niðurstaðan var að Loftslagsráð mun ekki tjá sig frekar um landsframlagið á þessu stigi.Önnur mál

Fyrir fundinum lá samskiptayfirlit frá verkefnisstjóra. Ekki voru umræður um það á fundinum. Tvö önnur mál lágu fyrir undir önnur mál, en ákveðið var að fresta þeim til næsta fundar.

Önnur mál

Tillaga kom fram um að setja fræðslu á dagskrá næsta fundar og var hún samþykkt. Tengja umræður um mælaborð loftslagsmála við þá umræðu. 

Vakin var athygli á að í fjármálaáætlun kemur fram að árleg framlög til loftslagsmála munu aukast 2022 en lækka um 4 milljarða árið 2024. Formaður og varaformaður Loftslagsráðs lýstu áhyggjum sínum af þessari hugsanlegu lækkun á reglulegum fundi með umhverfis- og auðlindaráðuneytinu nýlega. 

Vakin var athygli á áhugaverðu vefvarpi (webinar) sem verður 29. apríl kl. 14. Yfirskrift þess er „Assessing President Biden’s Climate Summit: Is the dial moving closer to 1.5°C?“ og er það haldið á vegum Foundation for Global Governance and Sustainability.

Fréttir

Málþing um stjórnun loftslagsmála og hlutverk loftslagsráða

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Loftslagsráð boða til málþings um stjórnun loftslagsmála og hlutverk loftslagsráða. Á málþinginu verður fjallað á fræðilegan hátt um stjórnun loftslagsmála (e. climate governance) og hlutverk...

Breytingar á Loftslagsráði í undirbúningi hjá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu

Í minnisblaði sem Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra kynnti á dögunum fyrir ríkisstjórninni kemur fram að hann hyggst þróa og efla Loftslagsráð svo það geti sinnt lögbundnu...

Uppgjör Loftslagsráðs

Loftslagsráð lýkur senn fjögurra ára skipunartíma sínum. Af því tilefni lagði ráðið mat á þann árangur sem náðst hefur, eða ekki náðst, síðustu fjögur árin í viðureigninni við loftslagsvá hérlendis og gaf út í skjali er nefnist: Uppgjör...

Tölum skýrt og verum hreinskilin til að vita hvar við stöndum

Á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP28, í lok þessa árs verður í fyrsta skipti kynnt svokallað stöðumat heimsins, eða global stock take. Stöðumatinu er ætlað að gefa nákvæma mynd af því hvar þjóðir veraldar eru staddar þegar kemur að...

Bráðnun jökla að aukast

Samkvæmt niðurstöðum nýrrar alþjóðlegrar rannsóknar hafa jöklar á Suðurskautslandinu og á Grænlandi bráðnað mun hraðar á undanförnum áratugum en áður var talið. Árleg bráðnun jöklanna hefur sexfaldast frá 1992 og sjö verstu árin hvað varðar...

Hlýnun stefnir yfir 1,5 gráðu mörkin á næstu árum

Fjármálaáætlun fyrir árin 2024-2028 hefur nú verið kynnt. Hún hefur að geyma áætlun um þróun ríkisútgjalda og tekna, og þar eru lagðar á borðið þær áherslur sem einkenna skulu umsvif hin opinbera á komandi árum. Áætlunin er byggð á spálíkönum sem...

Áform um alþjóðlegt vöktunarnet á losun og bindingu GHL

Nýjasta talan yfir magn koltvísýrings í andrúmsloftinu, þegar þetta er skrifað, er 424,32 ppm. Sú tala þýðir að af hverjum milljónum einingum í andrúmsloftinu eru 424,32 koltvísýringur. Talan er fengin frá rannsóknarstöðinni í Mauna Loa í Hawaii,...

Góð dæmi um réttlát umskipti – Ný skýrsla

Með því að gera ráð fyrir þjálfun starfsfólks og að því sé gert kleift að beita nýrri tækni og höndla nýjar áskoranir er hægt að auka líkurnar á því að loftslagsaðgerðir skili árangri til langs tíma. Þessa ályktun má draga af nýrri skýrslu UN...

Binda einhver ríki meira kolefni en þau losa?

Alls hafa 93 lönd í heiminum, samkvæmt Climatewatch, lýst því yfir formlega að þau stefni að kolefnishlutleysi. Ísland er á meðal þeirra tuttugu landa sem hafa bundið slíkt markmið í lög, en Ísland skal verða orðið kolefnishlutlaust samkvæmt lögum...

Hitastig sjávar og loftslagsbreytingar

Meðalyfirborðshiti sjávar á jörðinni hefur aldrei mælst jafnhár og nú í apríl, eða 21,1 gráða. Þar með hefur metið verið slegið frá því í mars 2016, en þá mældist hitinn 21 gráða. Mælingar undanfarinna áratuga hafa leitt í ljós að hitastig sjávar...