Fundargerð 6. fundar Loftslagsráðs

16. janúar 2019

Mætt: Halldór Þorgeirsson, Brynhildur Davíðsdóttir, Pétur Reimarsson, Hrönn Hrafnsdóttir, Sigurður Eyþórsson, Ragnhildur Freysteinsdóttir, Árni Finnsson, Guðfinna Aðalgeirsdóttir og Jóhanna Harpa Árnadóttir. Steingrímur Jónsson sótti fundinn í fjarfundarbúnaði.
Forföll boðaði Sigurður Ingi Friðleifsson.

Anna Sigurveig Ragnarsdóttir starfsmaður ráðsins sat fundinn og ritaði fundargerð.

Fundargerðir og gögn ráðsins

  • Fundargerðir og birting þeirra á vefsvæði ráðsins.
  • Unnið er að uppsetningu á vefsvæði ráðsins og verða fundargerðir birtar þar. Fundargerðir fyrstu fjögurra funda verða sendar ráðinu til samþykktar og birtar á vefnum. Drög að fundargerð 5. fundar ráðsins voru send fulltrúum fyrir fundinn. Drögin voru samþykkt án athugasemda.
  • Vinnusvæði loftslagsráðs á TEAMS
  • Samþykkt að nota Microsoft Teams sem vinnusvæði til að auðvelda fulltrúum í ráðinu aðgengi að gögnum sem tengjast starfinu og draga úr flæði tölvupósta.

Aðlögunaráætlun

  • Umfang, eðli, stjórnskipulag og innihald aðlögunaráætlunar.
  • Framhald var á umræðum loftslagsráðs um aðlögun sem fór fram á 3. og 4 fundi ráðsins.
  • Ráðið var sammála um að rannsóknar og vöktunarþátturinn er gríðarlega mikilvægur en aðgerðaráætlun þarf að ganga lengra og undirbyggja viðbrögð þjóðfélagsins við loftslagsbreytingum.
  • Ráðið telur þörf á að taka tíma í uppbyggingu á þekkingu til að auka skilning á hugtökum, vinnubrögðum og aðferðarfræði er tengjast áætlun um aðlögun.

Næstu skref

  • Loftslagsráð ræðir hugmyndir um hvað væri hægt að gera fram á vorið, þörf á að byggja upp færni m.a. með málþingi, með þeim formerkjum að auka skilning, læra af reynslu annarra þjóða, auka færni og samtal innan samfélagsins.
  • Unnið verður áfram með hugmyndirnar og stefnt að því að leggja fram tillögu á næsta fundi ráðsins.

Kynning ráðuneytisins á endurskoðun á lögum og reglugerðum er varða loftslagsmál

  • Lög um loftslagsmál.
  • Helga Jónsdóttir – lögfræðingur á skrifstofu hafs, vatns og loftslags kynnti stöðuna á endurskoðun á lögum um loftslagsmál.
  • Regluverk ESB, LULUCF, Effort Sharing, Governance og ETS
  • Hugi Ólafsson – skrifstofustjóri á sviði hafs, vatns og loftslags kynnti regluverk ESB og stöðuna í samningaviðræðum við Evrópusambandið um sameiginlegt markmið.

Undirbúningur næstu funda

  • Fundarröð fram á vorið.
  • Mótun annarra þátta starfsáætlunar Staða verkefna ráðsins rædd. Dagskrárliðir einstakra funda.
  • Landnýting og binding verði tekin fyrir næsta fundi.
  • Kolefnishlutleysi verði tekið til umfjöllunar sem fyrst.
  • Málþing, vinnustofa og etv. fleira tengt aðlögun verði rætt betur á næsta fundi. Drög að starfsáætlun verði sett fram á næsta fundi.

Önnur mál

Álit loftslagsráðs um stjórnsýslu loftslagsmála.

  • Loftslagsráð afhenti umhverfisráðherra álit um stjórnsýslu loftslagsmála í desember.
  • Ráðherra er sáttur við þetta fyrsta skref en óskaði eftir því að útfærði greininguna og tillögur frekar í málinu með það að markmiði að skila lokatillögum á vormánuðum.
  • rúnaði á skjalinu hefur verið aflétt og hægt verður að nýta það til viðræðna við forystufólk í kerfinu sem er grundvöllur frekari vinnu ráðsins hvað varðar stjórnsýslu loftslagsmála.
  • Ráðherra leggur áherslu að við fjöllum um aðlögunar og kolefnishlutleysi næstu mánuði.
  • Hvað varðar Loftslagssjóð, er ráðherra sammála tillögum ráðsins um aðkomu Rannís og ráðuneytið stefnir á að hefja viðræður við Rannís fljótlega.

Fundi slitið kl 16.00.

Fréttir

Málþing um stjórnun loftslagsmála og hlutverk loftslagsráða

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Loftslagsráð boða til málþings um stjórnun loftslagsmála og hlutverk loftslagsráða. Á málþinginu verður fjallað á fræðilegan hátt um stjórnun loftslagsmála (e. climate governance) og hlutverk...

Breytingar á Loftslagsráði í undirbúningi hjá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu

Í minnisblaði sem Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra kynnti á dögunum fyrir ríkisstjórninni kemur fram að hann hyggst þróa og efla Loftslagsráð svo það geti sinnt lögbundnu...

Uppgjör Loftslagsráðs

Loftslagsráð lýkur senn fjögurra ára skipunartíma sínum. Af því tilefni lagði ráðið mat á þann árangur sem náðst hefur, eða ekki náðst, síðustu fjögur árin í viðureigninni við loftslagsvá hérlendis og gaf út í skjali er nefnist: Uppgjör...

Tölum skýrt og verum hreinskilin til að vita hvar við stöndum

Á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP28, í lok þessa árs verður í fyrsta skipti kynnt svokallað stöðumat heimsins, eða global stock take. Stöðumatinu er ætlað að gefa nákvæma mynd af því hvar þjóðir veraldar eru staddar þegar kemur að...

Bráðnun jökla að aukast

Samkvæmt niðurstöðum nýrrar alþjóðlegrar rannsóknar hafa jöklar á Suðurskautslandinu og á Grænlandi bráðnað mun hraðar á undanförnum áratugum en áður var talið. Árleg bráðnun jöklanna hefur sexfaldast frá 1992 og sjö verstu árin hvað varðar...

Hlýnun stefnir yfir 1,5 gráðu mörkin á næstu árum

Fjármálaáætlun fyrir árin 2024-2028 hefur nú verið kynnt. Hún hefur að geyma áætlun um þróun ríkisútgjalda og tekna, og þar eru lagðar á borðið þær áherslur sem einkenna skulu umsvif hin opinbera á komandi árum. Áætlunin er byggð á spálíkönum sem...

Áform um alþjóðlegt vöktunarnet á losun og bindingu GHL

Nýjasta talan yfir magn koltvísýrings í andrúmsloftinu, þegar þetta er skrifað, er 424,32 ppm. Sú tala þýðir að af hverjum milljónum einingum í andrúmsloftinu eru 424,32 koltvísýringur. Talan er fengin frá rannsóknarstöðinni í Mauna Loa í Hawaii,...

Góð dæmi um réttlát umskipti – Ný skýrsla

Með því að gera ráð fyrir þjálfun starfsfólks og að því sé gert kleift að beita nýrri tækni og höndla nýjar áskoranir er hægt að auka líkurnar á því að loftslagsaðgerðir skili árangri til langs tíma. Þessa ályktun má draga af nýrri skýrslu UN...

Binda einhver ríki meira kolefni en þau losa?

Alls hafa 93 lönd í heiminum, samkvæmt Climatewatch, lýst því yfir formlega að þau stefni að kolefnishlutleysi. Ísland er á meðal þeirra tuttugu landa sem hafa bundið slíkt markmið í lög, en Ísland skal verða orðið kolefnishlutlaust samkvæmt lögum...

Hitastig sjávar og loftslagsbreytingar

Meðalyfirborðshiti sjávar á jörðinni hefur aldrei mælst jafnhár og nú í apríl, eða 21,1 gráða. Þar með hefur metið verið slegið frá því í mars 2016, en þá mældist hitinn 21 gráða. Mælingar undanfarinna áratuga hafa leitt í ljós að hitastig sjávar...