Fundargerð 7. fundar Loftslagsráðs

6. febrúar 2019

Mætt: Halldór Þorgeirsson, Brynhildur Davíðsdóttir, Pétur Reimarsson, Hrönn Hrafnsdóttir, Sigurður Eyþórsson, Ragnhildur Freysteinsdóttir, Árni Finnsson, og Jóhanna Harpa Árnadóttir. Guðfinna Aðalgeirsdóttir sótti fundinn í fjarfundarbúnaði.
Forföll boðuðu Sigurður Ingi Friðleifsson og Steingrímur Jónsson.

Anna Sigurveig Ragnarsdóttir starfsmaður ráðsins sat fundinn og skrifaði fundargerð.

Fundargerð seinasta fundar

Fundargerð seinasta fundar var samþykkt án athugasemda.

Landnýtingarþáttur aðgerðaáætlunar

Sameiginleg kynning ráðuneytisins, Skógræktarinnar og Landgræðslunnar

  • Jón Geir Pétursson skrifstofustjóri og Björn Helgi Barkarson sérfr., skrifstofu landgæða. Hugi Ólafsson skrifstofustjóri, skrifstofu hafs, vatns og loftslags.
  • Aðalsteinn Sigurgeirsson, fagmálastjóri hjá Skógræktinni
  • Gústav Ásbjörnsson, sviðstjóri hjá Landgræðslunni
  • Jón Geir kynnti drög að áætlun um landnotkun sem verið er að vinna á vegum ráðuneytisins sem hluta af aðgerðaráætlun stjórnvalda í loftslagsmálum. Áætlunin er unnin í nánu samstarfi við Landgræðsluna og Skógræktina og stefnt er að því að kynna hana á vormánuðum.
  • Aðgerðaáætlun um kolefnisbindingu og samdrátt losunar kolefnis frá landi miðar að markmiðum Parísarsamningsins 2030 og ríkisstjórnar Íslands um kolefnishlutleysi 2040. Auk þess eru lagðar til grundvallar áherslur varðandi undirbúning, framkvæmd og mat á árangri þeirra aðgerða sem ráðist verður í.

Næstu skref
Vinna heldur áfram við áætlunina á vegum ráðuneytisins. Mun verða send Loftslagsráði til rýningar þegar nær dregur útgáfu.

Aðgerðaráætlun

Ráðið telur mikilvægt að ljúka rýningu á 1. útgáfu Aðgerðaráætlunar í Loftslagsmálum 2018- 2030. Formaður mun taka saman niðurstöður frá umræðum loftslagsráðs um áætlunina í drög að áliti sem send verða út fyrir næsta fund ráðsins. Niðurstöðurnar verða ræddar á næsta fundi ráðsins og kynntar ráðherra í kjölfarið.

Starfsáætlun fyrir 2019

  • Drög að starfsáætlun ársins kynnt
  • Drög að starfsáætlun ráðsins var til umræðu. Byggir hún fyrst og fremst á skipunarbréfi ráðsins.
  • Umræður og næstu skref
  • Drög að starfsáætlun er samþykkt.

Aðlögunaráætlun

  • Skipulag málþings o.fl.
  • Staða mála í vinnu Loftslagsráðs um aðlögun var kynnt.

Fundi slitið kl. 12:00

Fréttir

Málþing um stjórnun loftslagsmála og hlutverk loftslagsráða

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Loftslagsráð boða til málþings um stjórnun loftslagsmála og hlutverk loftslagsráða. Á málþinginu verður fjallað á fræðilegan hátt um stjórnun loftslagsmála (e. climate governance) og hlutverk...

Breytingar á Loftslagsráði í undirbúningi hjá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu

Í minnisblaði sem Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra kynnti á dögunum fyrir ríkisstjórninni kemur fram að hann hyggst þróa og efla Loftslagsráð svo það geti sinnt lögbundnu...

Uppgjör Loftslagsráðs

Loftslagsráð lýkur senn fjögurra ára skipunartíma sínum. Af því tilefni lagði ráðið mat á þann árangur sem náðst hefur, eða ekki náðst, síðustu fjögur árin í viðureigninni við loftslagsvá hérlendis og gaf út í skjali er nefnist: Uppgjör...

Tölum skýrt og verum hreinskilin til að vita hvar við stöndum

Á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP28, í lok þessa árs verður í fyrsta skipti kynnt svokallað stöðumat heimsins, eða global stock take. Stöðumatinu er ætlað að gefa nákvæma mynd af því hvar þjóðir veraldar eru staddar þegar kemur að...

Bráðnun jökla að aukast

Samkvæmt niðurstöðum nýrrar alþjóðlegrar rannsóknar hafa jöklar á Suðurskautslandinu og á Grænlandi bráðnað mun hraðar á undanförnum áratugum en áður var talið. Árleg bráðnun jöklanna hefur sexfaldast frá 1992 og sjö verstu árin hvað varðar...

Hlýnun stefnir yfir 1,5 gráðu mörkin á næstu árum

Fjármálaáætlun fyrir árin 2024-2028 hefur nú verið kynnt. Hún hefur að geyma áætlun um þróun ríkisútgjalda og tekna, og þar eru lagðar á borðið þær áherslur sem einkenna skulu umsvif hin opinbera á komandi árum. Áætlunin er byggð á spálíkönum sem...

Áform um alþjóðlegt vöktunarnet á losun og bindingu GHL

Nýjasta talan yfir magn koltvísýrings í andrúmsloftinu, þegar þetta er skrifað, er 424,32 ppm. Sú tala þýðir að af hverjum milljónum einingum í andrúmsloftinu eru 424,32 koltvísýringur. Talan er fengin frá rannsóknarstöðinni í Mauna Loa í Hawaii,...

Góð dæmi um réttlát umskipti – Ný skýrsla

Með því að gera ráð fyrir þjálfun starfsfólks og að því sé gert kleift að beita nýrri tækni og höndla nýjar áskoranir er hægt að auka líkurnar á því að loftslagsaðgerðir skili árangri til langs tíma. Þessa ályktun má draga af nýrri skýrslu UN...

Binda einhver ríki meira kolefni en þau losa?

Alls hafa 93 lönd í heiminum, samkvæmt Climatewatch, lýst því yfir formlega að þau stefni að kolefnishlutleysi. Ísland er á meðal þeirra tuttugu landa sem hafa bundið slíkt markmið í lög, en Ísland skal verða orðið kolefnishlutlaust samkvæmt lögum...

Hitastig sjávar og loftslagsbreytingar

Meðalyfirborðshiti sjávar á jörðinni hefur aldrei mælst jafnhár og nú í apríl, eða 21,1 gráða. Þar með hefur metið verið slegið frá því í mars 2016, en þá mældist hitinn 21 gráða. Mælingar undanfarinna áratuga hafa leitt í ljós að hitastig sjávar...